Útborgunardagurinn var í gær

Í gær, 28. júní, byrjaði starfsmaður á meðallaunum að vinna fyrir launum sem enda í hans vasa en fram að gærdeginum hefur hann unnið fyrir sköttum, lífeyrisréttindum og öðrum kjarasamningsbundnum gjöldum. Þetta er niðurstaða úttektar Viðskiptaráðs á launafleygnum svokallaða, sem er mismunurinn á launakostnaði vinnuveitenda og útborguðum launum starfsmanns. Þetta er í þriðja sinn sem ráðið framkvæmir úttektina, en dagurinn færist aftur um einn dag miðað við niðurstöður síðustu tveggja ára.
Útborgunardagurinn var í gær

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta·Persónuvernd