Vilhjálmur H. Vilhjálmsson hæstarréttarlögmaður skorar á ríkissaksóknara að endurskoða öll lögreglumál sem varða lyfjaakstur eftir að ný umferðarlög tóku gildi árið 2020. Hann segir ótækt að ráðherra hafi ekki séð sér fært um að kveða á um vanhæfismörk með nánari hætti en skjólstæðingur hans var sýknaður í Landsrétti eftir að hafa fjórum sinnum ekið bíl undir áhrifum uppáskrifaðs óxýkódon.