Sjö voru vistaðir í fangageymslu í morgunsárið.RÚV / Alexander KristjánssonLögreglunni á höfuðborgarsvæðinu barst í gærkvöld eða nótt tilkynning um umferðarslys í póstnúmeri 108 þar sem bíll endaði utan vegar og ökumaðurinn flúði vettvang. Í dagbók lögreglu fylgir ekki sögunni hvort henni hafi tekist að hafa uppi á ökumanninum. Í póstnúmeri 110 slösuðust þrír í umferðarslysi þar sem draga þurfti bíla af vettvangi.Í Garðabæ var sextán ára ökumaður kærður fyrir að aka bíl enda ekki kominn á bílprófsaldur.Í Kópavogi var ökumaður kærður fyrir að aka um á nagladekkjum.Þá var einn handtekinn fyrir að stjórna rafhlaupahjóli undir áhrifum áfengis í Grafarvogi.