Ástralskur maður, Joseph McGrail-Bateup, sló nýlega heimsmet yfir háværasta mannsöskrið. Öskrið var mælt 122,4 desibil.Breska ríkisútvarpið BBC greinir frá þessu.Joseph þessi er 58 ára gamall og hefur í sjö skipti reynt við heimsmetið. En fyrra met átti Annalisa Flanagan, kennari frá Norður Írlandi, sem hún setti árið 1994. Það var 121,7 desibil.„Það er engin leið að æfa þetta,“ sagði Joseph. „Þú verður að halda þessu niðri þangað til á stóra daginn, sérstaklega þegar maður er að reyna við heimsmetið.“ Orðið sem hann öskraði var „Now“.