Stærsta olíuhreinsistöð Venesúela án rafmagns um tíma

Húsarústir í strandbænum Caraballeda í La Guaira-héraði sem varð einna verst úti í skjálftunum á miðvikudag.AP/POOL AFP / Miguel MedinaRafmagn er aftur komið á Amuay-olíuhreinsistöðina, sem er stærsta olíuhreinsistöð í Venesúela. Hún var um tíma óstarfhæf vegna rafmagnsleysis á sunnudag sem rekja má til tveggja stórra jarðskjálfta sem skuku landið á miðvikudagskvöld.Erfiðlega hefur gengið að tryggja framboð rafmagns til stórnotenda í landinu eftir skjálftana. Þá hefur vatnsskortur einnig sett strik í reikninginn, meðal annars í olíuhreinsistöðinni.Olíuhreinsistöðin gegnir mikilvægu hlutverki við dreifingu eldsneytis innan landsins.
Stærsta olíuhreinsistöð Venesúela án rafmagns um tíma

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta·Persónuvernd