Ástralía og Vanúatú undirrituðu í dag yfirgripsmikinn viðskipta- og öryggissamning. Samningurinn kveður á um að erlend ríki megi ekki byggja upp herstöð á eyríkinu Vanúatú.Stjórnvöld í Canberra hafa lýst yfir áhyggjum af því að ráðamenn í Kína vilji koma á fót herstöð á Vanúatú.Skip kínverska flotans hafa reglulega haft viðkomu í höfnum á Vanúatú. Kínversk stjórnvöld fjármögnuðu þar að auki stækkun hafnarinnar í Luganville sem lauk fyrir um átta árum. Þar var áður stærsta flotastöð Bandaríkjanna í Suður-Kyrrahafi en borgin er sú næstfjölmennasta á Vanúatú.Þessi aðkoma kínverskra stjórnvalda vakti áhyggjur, bæði Ástrala og Bandaríkjamanna, um að Kínverjar ætluðu sér að setja þar á fót flotastöð.Stjórnvöld í Kína og Vanúatú sögðu stækkunina hafnarinnar nauðsynlega fyrir móttöku skemmtiferðas