Stjórnvöld í Íran og Bandaríkjunum hafa samþykkt að stöðva árásir sínar og halda viðræðum um deilu ríkjanna um Hormússund áfram. Þetta segir embættismaður innan úr bandaríska stjórnkerfinu í samtali við Reuters. Óttast hefur verið um afdrif viljayfirlýsingar ríkjanna um friðarsamkomulag eftir að þau skiptust á árásum á síðustu dögum.Axios, sem greindi fyrst frá hléi árása, hefur eftir háttsettum bandarískum embættismanni að viðræður verði haldnar í Katar á þriðjudag. Upphaflega stóð til að fulltrúar ríkjanna myndu hittast í Sviss á þriðjudag til að ræða um kjarnorkuáætlun Írana. Eftir árásir síðustu daga var ákveðið að leggja áherslu á Hormússund í viðræðunum og þær færðar.Ríkin tvö lögðu ólíkan skilning í skilmála viljayfirlýsingarinnar sem var undirrituð 17. júní. Íranar vildu meina að s