Nabih Berri, forseti líbanska þingsins, segir þríhliða rammasamkomulagi milli Líbanons, Ísraels og Bandaríkjanna ekki verða hrint í framkvæmd. Berri er hliðhollur Hezbollah- samtökunum.Samkomulaginu, sem var undirritað í Washington á föstudag, er ætlað að tryggja frið í Líbanon. Samkvæmt samkomulaginu áttu líbönsk stjórnvöld að tryggja afvopnun Hezbollah. Á móti myndu Ísraelar draga her sinn úr Líbanon í áföngum.Berri segir samkomulagið ekki tryggja réttindi Líbanons og að um „samkomulag fyrirskipana“ sé að ræða.Hezbollah-samtökin sögðu í nótt að þau myndu halda í rétt sinn til sjálfsvarnar eftir að Ísraelsher gerði árásir í suðurhluta landsins. Í tilkynningu samtakanna segir að árásir Ísraela væru „blygðunarlaust brot“ á vopnahléi sem samtökin hefðu hingað til virt.