Þriggja bíla árekstur við Gullinbrú

Grafarvogur og Gullinbrú.RÚV / Ragnar VisageEinn var fluttur til skoðunar á slysadeild eftir árekstur við Gullinbrú í Reykjavík í kvöld. Þrír bílar urðu fyrir tjóni í árekstrinum að sögn varðstjóra hjá slökkviliðinu.Tilkynning um slysið barst á tíunda tímanum í kvöld.Þá var einn dælubíll frá slökkviliðinu á höfuðborgarsvæðinu sendur í Vesturbæinn í Reykjavík eftir tilkynningu frá vegfaranda sem heyrði í reykskynjara og fann brunalykt. Í ljós kom að um eldamennsku var að ræða.
Þriggja bíla árekstur við Gullinbrú

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta·Persónuvernd