33 hefur verið bjargað úr húsarústum í Venesúela um helgina, þeirra á meðal voru tveir ellefu ára drengir. Björgunarsveitir björguðu þeim úr húsarústum með nokkurra klukkustunda millibili í dag. Frá þessu greinir Delcy Rodríguez, settur forseti í Venesúela.Enn er tuga þúsunda saknað í landinu eftir tvo stóra jarðskjálfta sem þar urðu á miðvikudagskvöld. Skjálftarnir voru 7,2 og 7,5 að stærð. Hjálparstofnanir segja það áríðandi að ná til fólks á fyrstu 48 til 72 klukkustundunum eftir hamfarir sem þessar. Því dvíni vonin eftir því að finna fólk á lífi með hverjum klukkutímanum sem líður.1.450 hafa fundist látin samkvæmt upplýsingum frá stjórnvöldum.Alþjóðlegar björgunarsveitir eru komnar til Venesúela til að leita að fólki sem er fast í húsarústum. Íbúar eru afar ósáttir við það hversu hægt