Ísraelski herinn hefur eyðilagt göng sem Hezbollah-samtökin höfðu grafið í Suður-Líbanon. Göngin voru eyðilögð með sprengingu.Samkvæmt sameiginlegri yfirlýsingu Benjamíns Netanyahus forsætisráðherra og Israel Katz varnarmálaráðherra voru göngin rúmlega 200 metra löng og náðu meira en 25 metra niður í jörðina. Þar fundust að sögn þeirra hundruð vopna sem áttu að nýtast til árása á Ísrael og ísraelska borgara.Fyrr í vikunni undirrituðu Ísrael og Líbanon þríhliða rammasamkomulag ásamt Bandaríkjunum í Washington. Samkomulaginu er ætlað að greiða fyrir friðarviðræðum milli ríkjanna.Ísraelsk stjórnvöld segjast hafa tilkynnt Bandaríkjunum og fulltrúa þeirra í Líbanon fyrirfram um sprenginguna.Blaðamaður AFP í borginni Týros í Líbanon sá reyk stíga upp frá svæðinu nærri þorpinu Majdal Zoun og grei