Reykjavíkurborg áætlar að eyða rúmum milljarði króna í malbikunarframkvæmdir í sumar. Hjá Vegagerðinni, sem sér um viðhald þjóðvega innan höfuðborgarsvæðisins, nemur upphæðin rúmum 600 milljónum auk 85 milljóna í viðgerðir.Malbikunarflokkar hafa verið að störfum frá því í vor. Birgir Blöndahl Arngrímsson verkefnastjóri hjá Colas Ísland segir að vinnan hafi gengið vel.„Það er búið að ganga gríðarlega vel í sumar. Við komumst hratt af stað. Veðrið er búið að leika við okkur síðustu viku þó það hafi komið rigning inn á milli. Við erum búnir að malbika tvo þriðju af höfuðborgarsvæðinu fyrir Vegagerðina þannig að þetta skotgengur. Við erum búnir með 80 þúsund fermetra, eða 8 þúsund tonn af malbiki og eigum svona 40 þúsund fermetra eftir,“ segir Birgir.Hann segir götur og vegi koma misvel undan