Skora á stjórnvöld að bjarga endurhæfingunni á Kristnesi

Óvíst er hvað verður um Kristnesspítala í Eyjafjarðarsveit, eftir að greint var frá því að alla þjónustu yrði að flytja burt úr húsinu vegna myglu. Hátt í þúsund hafa skrifað undir áskorun til stjórnvalda um að húsunum verði bjargað og starfsemi haldið áfram.Í 99 ár hefur fólki verið hjúkrað á gamla Kristnesspítala í Eyjafjarðarsveit. Á árum áður var það kallað Heilsuhæli Norðurlands og var í áratugi sjúkrahús fyrir berklasjúklinga.Núna er Kristnesspítali hluti af Sjúkrahúsinu á Akureyri, þar er rekin öldrunar- og endurhæfingardeild og starfsfólk býr í húsunum í kring.En það verður dauft yfir Kristnesi eftir sumarið þegar öll húsin verða rýmd vegna rakaskemmda og myglu.Susanne Neumann, er ein þeirra sem hefur áhyggjur af skertri þjónustu eftir lokun. Þegar vel gekk hafi um 300 skjólstæðing
Skora á stjórnvöld að bjarga endurhæfingunni á Kristnesi

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta·Persónuvernd