Stór hluti framhaldsskólanema spilar fjárhættuspil – kallað eftir auknum forvörnum

Um 40% nemenda í framhaldsskóla hafa spilað fjárhættuspil síðastliðið ár samkvæmt nýrri könnun. Dósent við Háskóla Íslands kallar eftir auknum forvörnum fyrir þennan hóp.Háskóli Íslands leggur Íslensku æskulýðsrannsóknina fyrir annað hvert ár í framhaldsskólum til að kortleggja líðan og viðhorf ungs fólks. Í fyrsta sinn voru þau spurð hvort þau hefðu spilað fjárhættuspil síðustu tólf mánuði.Í ljós kom að tæplega 55% ungra karla eldri en 18 ára höfðu gert það og 33% ungra kvenna.Og rúmlega 44% drengja sem voru undir 18 ára og um 28% stúlkna.„Þetta er alltof há tala. Við búum í landi þar sem er bannað að stunda fjárhættuspil,“ segir Ragný Þóra Guðjohnsen, dósent hjá HÍ og faglegur stjórnandi íslensku æskulýðsrannsóknarinnar.Svipaður fjöldi í grunnskólunum hafði prófað fjárhættuspil miðað við
Stór hluti framhaldsskólanema spilar fjárhættuspil – kallað eftir auknum forvörnum

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta·Persónuvernd