Óvissa ríkir um skipaumferð í Hormússundi

Mikil óvissa ríkir um siglingar flutningaskipa um Hormússund. Vopnahlé milli Írans og Bandaríkjanna stendur völtum fótum og skipafélög segja ástandið skapa ringulreið og hættu.Bandaríkin og Íran undirrituðu viljayfirlýsingu um vopnahlé fyrir rúmri viku síðan. Í henni felst meðal annars að opnað verði fyrir skipaumferð um Hormússund að nýju. Þrátt fyrir vopnahléð situr þó fjöldi skipa enn fastur í Hormússundi og hafa ríkin skipst á árásum síðustu daga. Þá hefur Ísraelsher hafið árásir í suðurhluta Líbanons að nýju.Í frétt CNN segir að í ljósi áframhaldandi spennu á milli stjórnvalda í Bandaríkjunum og Íran hafi skipafélög verið sett í nær ómögulega stöðu þar sem þau viti ekki hvaða leið sé öruggust um sundið.Áður sigldu skip að mestu eina leið um sundið en um þessar mundir eru þrjár leiðir
Óvissa ríkir um skipaumferð í Hormússundi

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta·Persónuvernd