Aðgerðasinninn Paul Watson segir að skipið Bandero, sem er nú innan efnahagslögsögunnar, muni ekki stofna áhöfnum hvalveiðibáta í hættu. Markmið leiðangursins sé að stöðva hvalveiðar.„Ætlun okkar er að hindra Kristján Loftsson í að drepa hvali,“ segir hann í samtali við fréttastofu.Watson er ekki sjálfur um borð í skipinu. Hann hafnar því að leiðangurinn ætli sjálfur að brjóta lög.„Við vinnum samkvæmt alþjóðlegum verndunarlögum gegn ólöglegri starfsemi. Hver er annars tilgangurinn með alþjóðlegum verndunarlögum, reglum og reglugerðum, ef enginn framfylgir þeim?“ spyr Watson.Forstjóri Landhelgisgæslunnar greindi fréttastofu frá því síðdegis að varðskipið Þór hefði verið sent í átt að hvalveiðiskipunum til að gæta þeirra. Ákvörðunin var tekin í samráði við dómsmálaráðherra.Watson segir hins