Lögreglan í Þýskalandi leitar að konu sem fór inn á fæðingardeild og stal nýfæddu barni. Konan var klædd í dulargervi sem hjúkrunarfræðingur.Breska blaðið The Daily Star greinir frá þessu.Sjö daga gömlu barni var rænt af fæðingardeild á sjúkrahúsi í Ludenscheid sunnan við Dortmund í norðvestur hluta Þýskalands í gær. Barnið er fundið en mannræninginn gengur laus.Konan sem stal barninu var í dulargervi hjúkrunarfræðings, ljósbláum sloppi og með gleraugu. Hún er ljóshærð og lítur út fyrir að vera í kringum þrítugt og hátt í 180 sentimetrar að hæð.