Halla Tómasdóttir forseti Íslands segir margt hafa komið sér á óvart á þeim tveimur árum frá því að hún tók við embætti forseta en mest hafi komið henni á óvart hversu mikill kraftur er í þjóðinni. Hún segir nýtt verkefni, Heimahöfn, eiga að skapa farveg til að eiga samtal um framtíð þjóðarinnar á miklum umbrotatímum. Hún telur þörf á að efla hlustun og minnka skautun í samfélaginu.