Hitamet slegið í Þýskalandi þriðja daginn í röð

Hitamet var slegið í Þýskalandi í dag þegar 41,7 stiga hiti mældist á veðurstöð í Coschen, nærri pólsku landamærunum. Metið var slegið rétt um klukkan fjögur að staðartíma. Þetta er þriðji dagurinn í röð sem hitamet er slegið í landinu.Fyrir það var hæsti hiti í landinu frá upphafi mælinga 41,2 stig, en sá hiti mældist í júlí 2019. Þá hafði hiti aldrei náð 40 stigum í landinu í júní.Krákur og menn svala sér í gosbrunni í Berlín. Um 150 kílómetrum suðaustan við höfuðborgina var hitamet slegið í dag.EPA / CLEMENS BILAN
Hitamet slegið í Þýskalandi þriðja daginn í röð

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta·Persónuvernd