Bandero, skip samtaka Paul Watson, er farið að deila staðsetningu sinni með Landhelgisgæslunni. Skipið sigldi inn í efnahagslögsöguna í gær en hafði ekki deilt staðsetningu með Landhelgisgæslunni fyrr en í dag.Almennt eru skip með búnað sem deilir staðsetningu sjálfvirkt. Áhöfnin ber því hins vegar við að sá búnaður sé bilaður. Því var áhöfnin beðin um gefa upp staðsetningu handvirkt á klukkustundar fresti.Því sinnti áhöfnin ekki fyrst um sinn, en hefur nú tekið upp á því, sem fyrr segir.Yfirlýstur tilgangur Íslandsferðarinnar er að stöðva hvalveiðar Hvals hf., en skip fyrirtækisins eru nú á veiðum.Tilgangurinn með því að láta vita reglulega um staðsetningu er að tryggja skjót viðbrögð við eftirgrennslan, leit og björgun lendi skip í sjávarháska. Afar sjaldgæft mun vera að áhafnir skipa hu