Bæði Baldur og Herjólfur sigla á takmörkuðu afli

Herjólfur siglir enn á annarri skrúfunni og getur ekki annað fullri sumaráætlun. Því var ferjan Baldur fengin til að bæta það upp en nú er komin upp smávægileg vélarbilun í honum og þarf að fækka ferðum um helming.Framkvæmdastjóri Ferjuleiða, sem sér um Baldur, segir að það sé hægt að sigla ferjunni en það hafi þurft að minnka álag á hana. Á morgun fáist varahlutir og mannskapur til að gera við bilunina.„Það hafa komið aðeins óviðráðanlegar aðstæður, þannig hann getur ekki siglt sína fullu áætlun í dag. En annars siglum við samt sem áður 10 ferðir í dag og komum vonandi öllum til síns heima,“ segir Ólafur Jóhann Borgþórsson framkvæmdastjóri Herjólfs.Orkumótið var haldið í Vestmannaeyjum um helgina og því margir á heimleið. „VANDRÆÐAKAFLA AÐ LJÚKA“ Áætlun Herjólfs hefur verið skert síðan
Bæði Baldur og Herjólfur sigla á takmörkuðu afli

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta·Persónuvernd