Nærri þúsund eldingar á hálftíma

Kona í Svíþjóð slasaðist alvarlega þegar hún varð fyrir eldingu í morgun. Rétt tæplega eitt þúsund eldingar mældust á um hálftíma við Malmö í morgun. Þá gekk mikið eldingaveður einnig yfir Danmörku. Ekkert lát er á hitabylgjunni sem nú gengur yfir Norður-Evrópu. Þrumuveðrið hófst í gærkvöldi en náði mestum hæðum eldsnemma í morgun í Danmörku. Norður af Kaupmannahöfn laust eldingu niður í húsgafl svo það kviknaði í þaki hússins. Annars varð lítið tjón í eldingaveðrinu í Danmörku og ekki vitað um dauðsföll. Það rigndi eins og hellt væri úr fötu sem mörgum fannst kærkomið eftir hitann í gær, en þá var danska hitametið slegið þegar hitinn fór í 37 stig á Fjóni. Þrumuveðrið færðist svo austar þegar leið á morguninn. Um eitt þúsund eldingar mældust á um hálftíma þegar skruggurnar gengu yfir Malm
Nærri þúsund eldingar á hálftíma

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta·Persónuvernd