Nánast allt hefur fallið með íslenskum sjávarútvegi að undanförnu samhliða miklum verðhækkunum á afurðum og útlit fyrir áframhald á þeirri þróun, samkvæmt nýrri greiningu. Eitt áhugaverðasta vaxtartækifæri Síldarvinnslunnar til lengri tíma er talið vera utan hefðbundins sjávarútvegs, í fiskeldi og ekki síst í fóðurframleiðslu fyrir laxeldi.