Skip Paul Watson sjóðsins sem komið er inn í efnahagslögsöguna í því skyni að stöðva hvalveiðar hefur ekki tilkynnt um staðsetningu skipsins eins og því ber að gera. Áhöfnin varð ekki við kröfu Landhelgisgæslunnar þess efnis í gær.Eftirlitsflugvél Landhelgisgæslunnar, TF-SIF, flaug að skipinu Bandero innan 200 mílna efnahagslögsögunnar í gær og var áhöfnin beðin um að kveikja á staðsetningarbúnaði skipsins. Hann var sagður bilaður.Áhöfnin var þá látin vita að samkvæmt reglugerð um Vaktstöð siglinga væri skylt að gefa upp staðsetningu skipsins á klukkutímafresti. Samkvæmt upplýsingum frá Gæslunni hefur ekki verið orðið við því.Tilgangurinn með því að láta vita reglulega um staðsetningu er að tryggja skjót viðbrögð við eftirgrennslan, leit og björgun lendi skip í sjávarháska. Afar sjaldgæft