Ellefu manns eru sagðir hafa farist í flugslysi í Frakklandi í dag. Hinir látnu voru í lítilli flugvél og hugðust fara í fallhlífarstökk. Í hópnum voru fimm kennarar, fimm nemendur og einn reyndur flugmaður, að er fram kemur í frétt AFP.Samkvæmt franska fjölmiðlinum L'Est Républicain hrapaði flugvélin nærri bænum Tomblaine fyrir utan borgina Nancy í norðausturhluta Frakklands um klukkan 11.Innanríkisráðherra Frakklands, Laurent Nunez, er væntanlegur á vettvang síðdegis í dag.Fréttin verður uppfærð.