Ófremdarástand í íbúðakjarna í Suðurnesjabæ

Hópur starfsfólks í íbúðarkjarna fyrir fatlað fólk í Suðurnesjabæ segir ófremdarástand á vinnustað sínum og ekkert á sig hlustað þrátt fyrir margítrekaðar tilraunir til að koma fram úrbótum. Starfsfólkið vill ekki koma fram undir nafni en samkvæmt þeim, auk gagna sem DV hefur undir höndum, hafa nokkrir hætt störfum vegna ástandsins sem rekja megi til aðstandenda eins íbúa íbúakjarnans. Samkvæmt atvikaskráningu mun einn aðstandandinn hafa hótað starfsmanni fyrir að skipta á vakt við annan starfsmann.
Ófremdarástand í íbúðakjarna í Suðurnesjabæ

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta·Persónuvernd