10 ár frá Brexit: Sannfærður um að Bretar gangi aftur í ESB

23. júní 2016 ákváðu Bretar í þjóðaratkvæðagreiðslu að Bretland væri betur sett utan Evrópusambandsins, efnahags- og stjórnmálalegs ríkjasambands sem Bretar áttu þó ríkan þátt í að stofna og síðan móta um áratugaskeið. Tæp 52 prósent voru fylgjandi útgöngu en rétt rúmlega 48 prósent vildu áframhaldandi aðild. Tíu árum síðar hefur þetta snúist rækilega við. Af könnunum má ráða að meirihluti Breta telji Brexit hafa verið mistök, -ferlið allt hafa verið óttalegt klúður og að Bretland standi hallari fæti nú en áður. Í könnun sem birt var fyrr í þessum mánuði sögðust sextíu og eitt prósent aðspurðra óánægð með útgönguna og eftirleik hennar en einungis tólf prósent voru ánægð með stöðu mála. Í sömu könnun sögðu 57 prósent Brexit hafa verið mistök, þar á meðal 23 prósent þeirra sem kusu með því á
10 ár frá Brexit: Sannfærður um að Bretar gangi aftur í ESB

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta·Persónuvernd