Hnífstunguárás á Riddaranum í Engihjalla

Maður var stunginn með hníf á barnum Riddaranum við Engihjalla í Kópavogi í gærkvöld. Lögregla mætti á vettvang og handtók árásarmanninn.Þetta staðfestir Hjördís Sigurbjartsdóttir, aðstoðaryfirlögregluþjónn hjá lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu.Sá sem varð fyrir árásinni var fluttur með sjúkrabíl á slysadeild en frekari upplýsingar um líðan hans liggja ekki fyrir. Að sögn Hjördísar á eftir að yfirheyra árásarmanninn en hann gisti fangageymslur í nótt.RÚV / Ragnar Visage
Hnífstunguárás á Riddaranum í Engihjalla

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta·Persónuvernd