Kleif Kilimanjaro á höndunum

Þegar West og félagar nálguðust fjallsbrún Kilimanjaro vafði einn mannanna West í teppi og batt hann á bak sér. Það var of hættulegt að ganga spölinn á höndunum. „Félögum mínum fannst ég krúttlegur,“ segir West.Spencer West er ekki með fætur. Hann lét það þó ekki stoppa sig í að klífa Kilimanjaro, hæsta fjall Afríku.Í viðtali við the Guardian segir West að tilhugsunin um að klífa nær sex kílómetra háan tind fjallsins hafi virst fjarstæðukennd en eftir umhugsun, strangar æfingar og líkamsrækt hafi hann ákveðið að láta á það reyna. „MÉR FANNST HANN GENGINN AF GÖFLUNUM“ Hugmyndin kom frá stofnanda samtaka sem West vann hjá við alþjóðlega þróunarvinnu í Afríku. Sá hafði klifið Kilimanjaro og spurði West hvort hann myndi ekki íhuga að gera slíkt hið sama. „Mér fannst hann genginn af göflunum
Kleif Kilimanjaro á höndunum

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta·Persónuvernd