Mállýskumunur milli búrhvala í Miðjarðarhafi

Hópar búrhvala hvor sínum megin í Miðjarðarhafinu nota ólíkar mállýskur til að eiga í samskiptum. Þetta segja niðurstöður nýrrar rannsóknar.Búrhvalir eiga samskipti með hljóðum og nota til þess raðir stuttra smella sem kallast „kóðar“.Í frétt the Guardian segir að vísindamenn hafi tekið upp hljóð í hópum búrhvala í Miðjarðarhafi frá árunum 2003 til 2021. Þeir komust að því að kóðar hvalanna innihéldu flestir fjögur smelluhljóð. Hrynjandi hljóðanna var þó mismunandi milli hópa búrhvala í Austur- og Vestur-Miðjarðarhafi.Vísindamenn segja þetta sambærilegt mállýskum í tungumáli manna. MÁLLÝSKAN Í AUSTRI NÝRRI Kóðar hvalanna í vesturhluta Miðjarðarhafs samanstanda yfirleitt af þremur smelluhljóðum með reglulegu bili, hléi og svo öðru smellihljóði. Hvalir í austurhluta hafsins nota hraðari ú
Mállýskumunur milli búrhvala í Miðjarðarhafi

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta·Persónuvernd