Landsréttur hefur staðfest sýknudóm Héraðsdóms Vesturlands í áralangri deilu um landamerki jarðanna Svarfhóls og Sólheimatungu í Stafholtstungum í Borgarfirði. Með dómnum var hafnað kröfu eigenda Svarfhóls um að tvö engjastykki vestan Norðurár teldust hluti jarðar þeirra.