Gestur Hróarskeldu varð fyrir lest

21 árs gamall karlmaður er látinn eftir að hafa orðið fyrir lest rétt utan við hátíðarsvæði Hróarskelduhátíðarinnar í Danmörku í nótt. Lögregla segir að allt bendi til þess að maðurinn hafi látist af slysförum. Aðeins eru um 150 metrar frá hátíðarsvæðinu að lestarteinunum.Hróarskelduhátíðin hófst á laugardag og henni lýkur á laugardag eftir viku. Hitabylgja hefur sett strik í reikninginn. Í gær var hitamet í Danmörku slegið þegar hiti náði 36,6 stigum norður af Óðinsvéum.Lestarteinarnir liggja í útjaðri hátíðarsvæðisins.DR
Gestur Hróarskeldu varð fyrir lest

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta·Persónuvernd