Guðmundur í Brim bætir við sig töluverðum kvóta með kaupum á útgerð á æskuslóðum

Guðmundur Kristjánsson, framkvæmdastjóri Brims, keypti nýverið útgerðina Þórsnes ehf. í Stykkishólmi. Hann á sterkar rætur til bæjarins.„Afi og amma bjuggu í Stykkishólmi og ég var þarna í sveit á sumrin, oft. Svo hóf pabbi sína útgerð í Stykkishólmi 1956,“ segir Guðmundur. Hann segir fréttamanni að hann hafi keypt Þórsnes í gegnum „holding félag“ í sinni eigu.Um 50 manns starfa hjá Þórsnesi þegar mest lætur. Félagið var áður í eigu Eggerts Bergmanns Halldórssonar, 15%, og Gunnlaugs Karls Hreinssonar, 85%, í gegnum félög þeirra E. Halldórsson ehf. og Austmar ehf. Eggert Bergmann verður áfram framkvæmdastjóri Þórsness en hann hefur rekið útgerðina um árabil.Eggert segir það leggjast vel í sig að Guðmundur sé orðinn eigandi Þórsness.„Gummi er náttúrulega ættaður héðan. Hann er Snæfellingur,“
Guðmundur í Brim bætir við sig töluverðum kvóta með kaupum á útgerð á æskuslóðum

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta·Persónuvernd