Íþrótta- og útilífsráð Reykjavíkurborgar hefur samþykkt að lengja opnunartíma sundlauga borgarinnar til klukkan 22 á kvöldin allar helgar frá og með 1. september.Tillagan var lögð fram af fulltrúum Sjálfstæðisflokks og Viðreisnar og var samþykkt á fundi ráðsins á föstudag. Samkvæmt greinargerð er ákvörðunin liður í stefnu meirihlutans um aukið aðgengi að sundlaugum borgarinnar.Borgarstjórn samþykkti fyrr á árinu að hafa lengri opnunartíma um helgar til reynslu út ágúst. Með nýju samþykktinni verður fyrirkomulagið gert varanlegt. KOSTNAÐUR NEMUR 2,5 MILLJÓNUM Á MÁNUÐI Áætlað er að breytingin kosti um 31 milljón króna á ári. Samkvæmt fyrra kostnaðarmati borgarinnar nemur kostnaður við að lengja opnun um eina klukkustund um helgar að jafnaði um tveimur og hálfri milljón króna á mánuði fyri