Íranar gera árásir á Kúveit og Bahrein

Árásir hafa staðið yfir á Kúveit og Bahrein í nótt. Loftvarnarflautur fóru í gang í Barhein og íbúar voru hvattir til að fara í öruggt skjól og halda ró sinni. Bandarísk herstöð er í Bahrein.Þá hefur herinn í Kúveit einnig varað íbúa landsins við að leita skjóls vegna flugskeyta- og drónaárása, samkvæmt tilkynningu hersins á X.Íranski byltingarvörðurinn segir árásirnar á Kúveit og Bahrein vera hefndarárásir fyrir árásir Bandaríkjanna í gær. Í tilkynningu frá byltingarverðinum segir að þeir hafi eyðilagt hernaðarinnviði í bandarísku Ali al-Salem-herstöðinni í Kúveit og herstöð sjóhersins í Salman-höfninni í Bahrein.Donald Trump Bandaríkjaforseti sagði í færslu á Truth Social í gær að bandarískum tíma að bandarískar herflugvélar hefðu gert árásir á flugskeyta- og drónageymslu Írana og ratsjá
Íranar gera árásir á Kúveit og Bahrein

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta·Persónuvernd