Bandero, skip hvalverndarsinnans Paul Watson, var ekki með kveikt á staðsetningarbúnaði skipsins þegar það sigldi inn í íslenska efnahagslögsögu á níunda tímanum í kvöld.„Áhöfn eftirlitsflugvélar Landhelgisgæslunnar TF-SIF fór í eftirlitsflug um sunnanverða lögsöguna og kom auga á þetta skip sem þá var rétt ókomið inn í efnahagslögsöguna,“ segir Ásgeir Erlendsson, upplýsingafulltrúi Landhelgisgæslunnar, í samtali við fréttastofu.Áhöfnin á Bandero sagði að sjálfvirkur staðsetningarbúnaður skipsins væri bilaður. Staðsetningarbúnaður skipa er mikið öryggismál sjófarenda.„Þar sem skipið var ekki að senda sjálfvirka staðsetningu skipsins um AIS-búnað eins og alþjóðalög kveða á um, hafði Landhelgisgæslan samband við skipið og óskaði eftir því að skipið myndi senda upplýsingar um staðsetningu á k