Hnífstunguárás á Riddaranum

Maður var stunginn með hnífi á Ölstofunni Riddarinn við Engihjalla 8 í kvöld (laugardagskvöld). Þetta herma heimildir DV. Starfsstúlka á barnum virkjaði neyðarhnapp til öryggisþjónustunnar Top Guard sem komu á staðinn og yfirbuguðu árásarmanninn. Lögregla kom síðan á vettvang og handtók árásarmanninn.Ekki liggja fyrir upplýsingar um líðan brotaþolans á þessari stundu.
Hnífstunguárás á Riddaranum

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta·Persónuvernd