Skipið Bandero.RÚV / Vefsíða Captain Paul Watson FoundationBandero, skip hvalverndarsinnans Paul Watson, er komið inn fyrir 200 sjómílna mörk íslensku efnahagslögsögunnar.„Áhöfn Bandero er nú innan 200 mílna marka Íslands. Landhelgisgæsla Íslands er að eyða peningum í að hafa auga með okkur,“ skrifar Watson í færslu á Facebook.Watson segir að Kristján Loftsson, forstjóri Hvals hf., ætti að senda Gæslunni reikning og sakar Landhelgisgæsluna um að vernda það sem hann kallar glæpsamlega starfsemi.Skipið Bandero á vegum samtaka Watsons er á leið til landsins í þeim tilgangi að gera allt til að koma í veg fyrir veiðar Hvals hf. að því er Watson segir.