Stór og mikill dróni gegnir nú því hlutverki á golfvellinum í Þorlákshöfn að bera áburð á völlinn, ýmist í kornaformi eða fljótandi formi.Dróninn er engin smásmíði, hann tekur sig á loft við vallarsvæðið og fer svo yfir allan völlinn til að bera á hann. Chris Elrick, sem er frá Skotlandi, sér um að stjórna og fljúga drónanum.Vallarstjórinn er hæstánægður með drónann og segir stofnkostnað við hann mun lægri en í tilfelli sérstakra úðunarbíla áburðar, sem flestir stærri golfklúbbar hafa keypt.„Hann flýgur í þriggja til fjögurra metra hæð og getur tekið um það bil eins og við erum að gera núna, við erum svona að prófa okkur áfram, við erum samt byrjuð að gefa næringu, þá eru svona sex metrar á milli ferða fram og til baka. Hann notar í rauninni frásogið frá hreyflunum eða spöðunum í dreifingu