Aleksandar Vučić, forseti Serbíu, hefur sagst ætla að segja af sér innan nokkurra vikna.Þessu greindi hann frá þegar hann ávarpaði stuðningsmenn sína á samkomu í Belgrad, höfuðborg Serbíu, fyrr í dag. „Ég verð forseti í aðeins nokkrar vikur og síðan mun ég segja af mér,“ sagði hann. Seinna kjörtímabili Vučić átti að ljúka í maí 2027.Vučić hefur gegnt embætti forseta Serbíu frá árinu 2017. Áður hafði hann verið forsætisráðherra frá árinu 2014.Mikið hefur verið um mótmæli í landinu síðustu vikur þar sem mótmælendur hafa kallað eftir því að þingkosningum verði flýtt í landinu.Mótmæli hafa reglulega verið í Belgrad eftir að 16 létust þegar steinsteypt þak á lestarstöð hrundi niður í borginni Novi Sad í nóvember 2024. Stúdentar hafa leitt mótmælin og fyrst um sinn kölluðu mótmælendur eftir því