Dan Sullivan mætir Dan Sullivan í forvali Repúblikana

Dómari í Alaska í Bandaríkjunum hefur úrskurðað að alnafni öldungadeildarþingmanns Repúblikanaflokksins, Dan Sullivan, fái að bjóða sig fram gegn nafna sínum í forvali flokksins í ágúst. Þingmaðurinn hefur fordæmt framboðið og heldur því fram að það geti ruglað kjósendur.Dan Sullivan, maðurinn sem býður sig fram gegn þingmanninum, er kennari á eftirlaunum. Hann er búsettur í sjávarþorpinu Petersburg í Alaska. Í samtali við fréttaveitu AP segist Sullivan lengi hafa íhugað að bjóða sig fram.Hann hafi með tímanum orðið sífellt óánægðari með störf þingmannsins og að auki hafi það gert honum auðveldara að fanga athygli kjósenda. SÖGÐU SULLIVAN EKKI BJÓÐA SIG FRAM „Í GÓÐRI TRÚ“ Með ákvörðuninni felldi Thomas Matthews, héraðsdómari í Alaska, ákvörðun Carol Beecher, framkvæmdastjóra kjörstjórna
Dan Sullivan mætir Dan Sullivan í forvali Repúblikana

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta·Persónuvernd