Reykjavíkurborg ætlar að skoða hvort og þá hvernig sé hægt að segja upp samkomulagi við ríkið um uppbyggingu á ríkislóðum. Borgarlögmanni verður falið að rýna möguleika borgarinnar á uppsögn eða afturköllun samkomulagsins, sem er frá því í apríl.Þetta var samþykkt í borgarráði á þriðjudag.Samningurinn snýr að uppbyggingu 1.400 íbúða á lóðum, sem hafa verið nýttar undir húsnæði ríkisins. Lóðirnar hafa þótt vannýttar og lengi staðið til að auka byggingarmagn.Samkomulagið var undirritað í lok apríl, þremur vikum fyrir kosningar, en það á sér nokkurn aðdraganda.„Það hefur einhvern veginn ekki tekist að landa samningum hingað til en það tókst núna með góðum vilja borgarinnar og fjármálaráðuneytisins að fylgja þessu máli eftir. Þetta tók tíma og þetta eru flóknir samningar,“ sagði Daði Már Krist