Yfir fjórtán hundruð hafa fundist látin

Að minnsta kosti tuttugu alþjóðlegar björgunarsveitir eru komnar til Venesúela til að leita að fólki sem er fast í húsarústum eftir jarðskjálftana á miðvikudag. 1.430 hafa fundist látin en þúsunda er enn saknað. Um þrír sólarhringar eru síðan skjálftarnir tveir riðu yfir og íbúar eru afar ósáttir við það hversu hægt björgunarstörfum miðar.Margir grafa með höndunum til að ná til ástvina í rústunum. Að minnsta kosti tuttugu alþjóðlegar björgunarsveitir eru komnar til Venesúela til að leita að fólki. Enn heyrist í fjölda fólks undir rústunum en víða vantar tækjakost til að ná til þeirra.
Yfir fjórtán hundruð hafa fundist látin

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta·Persónuvernd