Óvenju gróðursælt er inni í bænum Stöng í Þjórsárdal en gróður þrífst þar vel vegna hönnunar á yfirbyggingu bæjarins. Uggi Ævarsson minjavörður Suðurlands segir að líkja mætti Stöng við gróðurhús en óvelkominn gróður hefur sprottið upp víðs vegar um bæinn.Gróðurinn er þó ekki kominn til að vera. „Nei, gróðurinn vill Minjastofnun ekki,“ segir Uggi.Flestum er eflaust kunnugt um Stangarbæinn en hann er einn þekktasti bær landsins frá þjóðveldisöld. Árið 2024 var opnuð ný yfirbygging yfir bæinn en þak hennar er glært og svipar hún til þaks gróðurhúsa. VIKUR TIL BJARGAR Bærinn var grafinn upp árið 1936 í fornleifauppgreftri í Þjórsárdal. Fljótlega eftir uppgröftinn var reist skýli yfir bæinn og hefur yfirbygging bæjarins tekið á sig ýmsar myndir í gegnum árin en þetta er í fyrsta skipti sem