Mikil jarðvegsfylla hefur fallið úr Reynisfjalli í Reynisfjöru, austan við Hálsanefshelli. Þangað kemst enginn eins og er vegna landbrots.Hrunið sést illa úr fjörunni, vegfarendur höfðu tekið eftir stórum hnullungum í sjónum sem líklega höfðu fallið úr fjallinu. Þórir Kjartansson býr í Vík og hefur fylgst með fjörunni í tugi ára – hann skoðaði hrunið með dróna í gærkvöldi.„Og þá blasti þetta við. Það hefur hrunið þarna gríðarlega mikil fylla úr bjarginu fast austan við hálsanefið. Það kannast flestir við hellinn sem er þarna í stuðlaberginu, þetta er fast austan við það,“ segir Þórir.Hrunið má sjá í þessu myndskeiði sem Þórir tók.Stórt hrun varð úr Reynisfjalli austan við Hálsanefshellinn í stuðlaberginu. Heimamaður segir að hrunið komi úr að minnsta kosti 100 metra hæð.„Þetta hefur komið