Landsmótið á Hólum fer fram í Hjaltadal dagana 5. til 11. júlí en það er Hestamannafélagið Skagfirðingur sem heldur mótið. Fyrstu drög að dagskrá landsmótsins hafa verið birt á heimasíðu mótsins en þar má finna tímasetta keppnis- og sýningardagskrá fyrir mótið.Hestamenn landsins eru orðnir mjög spenntir fyrir mótinu, Bergur Jónsson í Syðri-Gegnishólum í Flóahreppi er einn þeirra.„Ég hef heyrt talað um að það sé búið að selja gríðarlega mikið af miðum og veðrið verður gott, það er fallegt í Skagafirði. Skagfirðingar eru höfðingjar heim að sækja. Mér þykir vænt um Skagfirðinga og það er alltaf gaman að koma í Skagafjörð,” segir Bergur.Hulda Gústafsdóttir á hestabúgarðinum Árbakka í Holta- og Landsveit í Rangárþingi ytra er líka mjög spennt fyrir landsmótinu.„Það er svona gluggi fyrir ræktend