Elín Björg Ragnarsdóttir fiskistofustjóri leitar logandi ljósi að nýju húsnæði fyrir starfsfólk sitt. Fiskistofa, ásamt fjölmörgum öðrum ríkisstofnunum, hafa haft aðsetur á Borgum á Akureyri. Þar hefur ítrekað fundist mygla.Myglu varð fyrst vart árið 2024 og stofnanir hafa flúið unnvörpum. Viðgerð á húsnæðinu átti að vera lokið á vordögum og Fiskistofa hafði komið sér fyrir á ný þegar mygla fannst aftur.„Við erum að skoða stöðuna enn þá. Ég á fund með reitum 6. júlí þar sem við skoðum nýtt húsnæði fyrir Fiskistofu til bráðabirgða. Borgir eru frábær aðstaða og frábær staðsetning en það verður auðvitað að koma húsinu í lag þannig við getum verið þar áfram. Ég útiloka það ekkert ef það tekst að koma fyrir mygluna. Ég þarf að sjá jákvæða útkomu af sýnum áður en ég býð fólki þangað aftur,“ segi