Skemmtistaðurinn Le Constellation í skíðabænum Crans Montana í Sviss verður endurhannaður sem rými tileinkað ungu fólki. 41 létust og 115 særðust í eldsvoða sem kom upp á skemmtistaðnum á nýársnótt. Flest þeirra sem létust voru ungmenni.Í samtali við svissneska dagblaðið Le Temps segir Christophe Darbellay, æðsti embættismaður í Wallis-héraði, að staðurinn verði endurhannaður sem vettvangur fyrir ungt fólk. Einnig sé unnið að gerð minnisvarða um fórnarlömb eldsvoðans sem sé nauðsynlegur þáttur í því að heiðra minningu þeirra.Minnisvarðanum er ætlað að vera á fallegum, friðsælum og aðgengilegum stað þar sem fólk getur vottað þeim sem létust og særðust í eldsvoðanum virðingu sína. AÐSTANDENDUR SAKA EIGENDURNA UM MORÐ AF ÁSETTU RÁÐI Skemmtistaðurinn Le Constellation var troðfullur af ungu