Hvalveiðar verða bannaðar gangi markmið atvinnuvegráðherra eftir um lagasetningu næsta vetur. Skip samtaka Paul Watson er á leið til landsins til að reyna að koma í veg fyrir hvalveiðar.Bandero, skip samtakanna Captain Paul Watson Foundation, kennd við stofnandann og hvalveiðiandstæðinginn Paul Watson, er á leið til landsins í leiðangri sem kallaður er Aðgerð 86. Leiðangurinn er kenndur við árið 1986 þegar samtökin Sea Sheapherd sökktu bátum Hvals hf. Hval 6 og Hval 7 í Reykjavíkurhöfn. Paul Watson sem þá var í samtökunum sagðist bera ábyrgð á verknaðinum.„Við ætlum að gera allt sem við getum til þess að koma í veg fyrir að þau drepi ekki neinn hval á meðan við erum þar“, segir Paul Watson um borð í Bandero í myndbandi á Facebook síðu samtakanna sem birt var í gær: GÆSLAN Á VAKTINNI Lan