Bekkur við göngustíg við Sæbraut í Reykjavík nálægt Höfða er orðinn að minningarbekk um kínverskan söngvara og leikara sem lést í fyrra.Yu Menglong, sem einnig var kallaður Alan Yu, lést í september eftir fall úr fjölbýlishúsi í Peking. Lögreglan þar í landi tilkynnti að andlát Yu hefði verið slys eða sjálfsvíg og að Yu hefði verið undir áhrifum. Hún útilokaði að nokkuð saknæmt hefði gerst.Útskýringar og umfjöllun um dauðsfallið vöktu hins vegar tortryggni netverja, samkvæmt miðlinum Foreign Policy. Í framhaldinu spruttu upp ýmsar samsæriskenningar um að brögð hefðu verið í tafli og að yfirvöld hefðu reynt að hylma yfir það.Kínverskir samfélagsmiðlar eru ritskoðaðir og reynt var að eyða allri umræðu um Yu sem var ekki samhljóma opinberum útskýringum á dauðsfallinu. Til dæmis var aðgöngum s